|
|
|
Útvistarhópur í hjólaferð |
|
|
|
|
föstudagur, 18 maí 2012 14:48 |
|
Miðvikudaginn 16. maí fór hópur nemenda ásamt kennara hjólandi til Þingvalla. Um var að ræða námslið í valgreininni Útivist. Veðrið var gott, fremur kalt en stillt og því voru aðstæður kjörnar til hjólreiða. Ferðin gekk vel og nemendur stóðu sig allir einstaklega vel.
Smelltu á myndina til að sjá fleiri. |
|
miðvikudagur, 09 maí 2012 10:38 |
|
Nemendur 3. G fóru að Grjóteyri í Kjós mánudaginn 7. maí. Allir voru mættir tímalega og vel útbúnir þegar skólabjallan hringdi um morguninn. Við brunuðum upp í Kjós í fallegu veðri og virtum fyrir okkur náttúruna, sérstaklega fjöllin. Á bænum skoðuðum við dýrin, bóndabæinn, lékum okkur og borðuðum nesti úti í garði. Síðan var komið við í fjöru til að kíkja á steina en Hvalfjörðurinn er þekktur fyrir að geyma fallega steina. Allir fundu allaveganna einn baggalút. Það jafnast ekkert á við sveitaferð! Smelltu á myndina til að sjá fleiri.
|
|
miðvikudagur, 09 maí 2012 10:32 |
|
Undanfarið hafa nemendur í öðrum bekk lært um hafið í náttúrufræði og samfélagsfræði. Föstudaginn 4. maí fóru þeir ásamt kennurum í fjöru á Seltjarnarnesi. Þeir skoðuðu meðal annars hrúðukarla, pípuorma, blöðruþang, beltisþara, grænhimnu, hjartaskel, kræling, kúfskel, beitukóng, þöngulhaus, þangdoppu, trjónukrabbba, kuðungakrabba, æðarfugl, stokkönd, hettumáf og svartbak. Veðrið var gott og undu allir sér vel við náttúruskoðun. Smelltu á myndina til að sjá fleiri.
|
|
10. bekkur í kynningu á endurlífgun |
|
|
|
|
miðvikudagur, 02 maí 2012 13:55 |
|
Miðvikudaginn 2.maí fékk 10.bekkur kynningu á endurlífgun. Það voru þau Hildur og Ásgeir foreldrar Dagnýjar í 10.bekk sem voru svo væn að koma og kynna fyrir þeim endurlífgun á fullorðnum og börnum. Þau höfðu meðferðis dúkkur sem nemendur æfðu sig á. Allir fengu að prófa að hnoða og blása. Nemendur voru áhugasamir og sammála um að þetta væri eitthvað sem allir þyrftu að kunna. Kunnum við þeim Hildi og Ásgeiri bestu þakkir fyrir.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 40 |