Foreldraráð.
Samkvæmt 16. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995 skal fjalla um og gefa umsögn til viðkomandi
skólanefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða skólahaldið og
fylgist með að áætlanir séu kynntar foreldrum, svo og með framkvæmd
þeirra. Skólastjóri starfar með foreldraráði og er honum skylt að veita ráðinu
upplýsingar um skólastarfið og niðurstöður mats á starfi skólans.
Hugmyndin að baki foreldraráðum er sú að auka áhrif foreldra og skapa
þeim formlegan vettvang til að koma sjónarmiðum sínum varðandi innihald
og áherslur í starfi skólans á framfæri við skólann. Foreldraráð er
samráðsvettvangur og tenging skólayfirvalda við foreldra.
Tengiliður: Linda Björk Ólafsdóttir s:5624532 , 5303700 vs:8966664,
netfang: linda04@ru.is