Reykjavík, 11.10.2005

Til foreldra og nemenda Hvassaleitisskóla

Athygli foreldra og nemenda er vakin á 3 gr. í reglum skólans þar sem fram kemur að nemendum er óheimilt að fara út fyrir lóð skólans nema með leyfi kennara eða stjórnenda. Þurfi nemendur nauðsynlega að fara heim á skólatíma er það viðtekin venja að þeir eru látnir hringja í foreldra til að fá leyfi þeirra til þess.

Af gefnu tilefni, þar sem brögð hafa verið að því að elstu nemendur fari í frímínútum út fyrir skólalóð án leyfis, er þeim tilmælum beint til foreldra að þeir brýni fyrir börnum sínum að samkvæmt reglum skólans er nemendum óheimilt að fara út fyrir skólalóð án leyfis. Nemendur eru ekki á ábyrgð skólans utan skólalóðar.

Með kveðju og von um gott samstarf

Skólastjóri