2. bekkur fór í fjöruferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 17:22
img_1157

Nemendur í 2. bekk hafa í vetur lært um hafið í náttúrufræði og miðvikudaginn 26. maí fóru þeir í fjöruferð út á Seltjarnarnes.  Veðrið var frábært, borðað var nesti úti undir beru lofti.  Nemendur gengu um fjörurnar og í flæðarmálinu og skoðuðu lífríkið.  Þeir fundu m.a. rauðmaga, sprettfisk, einbúakrabba, beitukónga og skeljar.   Börnin skemmtu sér vel og voru til fyrirmyndar.   Mjög skemmtilegur dagur í fallegu umhverfi. 

 
Myndir frá lokaballi 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 17:00
p1040394 Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir frá lokaballinu
 
6. bekkur í sjóferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 27 maí 2010 13:54
img_1189

Faxaflóahafnir og sjávardýrasafn Fjölskyldu– og húsdýragarðsins standa fyrir sjóferðum um Sundin fyrir 6. bekk. Fimmtudaginn 27. maí fór 6. G í eins og hálfs tíma sjóferð um sundin.  Markmiðið er að gefa nemendum kost á að kynnast umhverfi Reykjavíkurhafnar og lífríki sjávar í Sundunum. Við fórum í rútu niður að höfn og aftur til baka. Nemendur voru flestir vel klæddir og nutu ferðarinnar til hins ýtrasta. Þeir mældu hitastig sjávar, seltustig, sjóndýpt, fræddust um lífverur sjávarins og vistkerfi hans.

 
Vorferð 10. bekkjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 27 maí 2010 13:37
img_5433

Hin árlega vorferð 10. bekkinga í Hvassaleitisskóla var dagana 25. – 26. maí. Brugðið var út af vananum , ekki var farið út á land að þessu sinni heldur hélt hópurinn sig allan tímann í Reykjavík í frábæru veðri. Farið var með strætó í Grafarvoginn og stefnan tekinn á Skemmtigarðinn , þar var farið í Lazer tag og Paint ball og virtust allir skemmta sér hið besta. Því næst var farið í Laugardalslaugina og svo borðað í veitingahúsinu Laugaási.

 Krakkarnir léku sér svo í dalnum fram eftir kvöldi voru í fótbolta og frjálsum m.m. Um nóttina var gist í Farfuglaheimilinu í Laugardal og morguninn eftir var aftur farið í Laugardalslaugina og undu karakkarnir sér vel við leiki og sólböð. Áður en strætó var tekinn uppí Hvassó fengu allir sér pulsu og gos og þannig lauk þessari vorferð.
 
7. G dvaldi í skólabúðum að Reykjum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 25 maí 2010 17:14
imgp3748

Nemendur  7. G dvöldu  í skólabúðum að Reykjum í Hrútafirði vikuna 17. – 22. maí.
Ferðin gekk í alla staði vel og voru nemendur til fyrirmyndar.

Nemendur  fengu fræðslu um fjármál, stunduðu íþróttir af kappi  og heimsóttu Byggðasafnið á Reykjum  þar sem sumir smökkuðu hákarl í fyrsta skipti.

 Á kvöldin voru kvöldvökur með skemmtiatriðum bæði frá nemendum og starfsfólki.

Margir eignuðust nýja vini enda margir skemmtilegir krakkar úr Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ og Borgarhólsskóla á Húsavík sem dvöldu með þeim að Reykjum.

Hér eru myndir frá dvölinni.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 18

Viðburðadagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Á döfinni

fim 16.sep kl. 15:00 - 17:00
Haustfundur og námskynningar í 1. -10. bekk
fim 23.sep kl. 14:00 - 16:00
7. bekkur heimsækir Læknadeild HÍ
þri 28.sep kl. 09:00 - 15:00
Haustferð 8.-10. bekkja
Clicky Web Analytics