|
föstudagur, 16 apríl 2010 13:44 |
|
Þriðjudaginn 20. apríl verður þemadagur í öllum árgöngum í Hvassaleitisskóla.
Unnin verða margbreytileg samvinnuverkefni bæði úti og inni og lagt á sameiginlegt borð í nestistíma (innan hvers aldurshóps).
Við biðjum því foreldra að útbúa nesti í nestisbox fyrir börn sín t. d. niðurskorna ávexti , grænmeti, brauðteninga eða annað í þessum dúr sem hægt er að setja beint á borð.
Einnig bjóðum við foreldra velkomna í skólann að fylgjast með vinnu nemenda.
Stjórnendur. |
|
|
Skólaþing Hvassaleitisskóla |
|
|
|
|
föstudagur, 09 apríl 2010 15:01 |
 |
Skólaþing nemenda í 8.-10. bekk var haldið í skólanum 8. og 9. apríl
Skólastjóri kynnti stefnu skólans, ræddi um fjölbreytni í einstaklingsmiðuðu námi , skilvirkni og gæði í skólastarfinu, félagsfærni og sjálfsöryggi nemenda.
Markmið skólaþingsins er að fá nemendur til virkrar þátttöku í stefnumótun og þróun annarra málefna skólans.
|
|
Nemendur unnu í hópum og svöruðu eftirfarandi spurningum. 1. Hvað gerir góðan skóla að betri skóla ? 2. Hvernig geta fulltrúar nemenda í skólaráði og nemendaráði stuðlað að fjölbreytni í skólastarfi ? Skemmtilegar umræður voru í hópunum. Nemendur voru mjög virkir og niðurstöður fjölbreyttar og verða þær birtar síðar.
|
|
|
Frá Vinnuskóla Reykjavíkur |
|
|
|
|
miðvikudagur, 07 apríl 2010 11:20 |
|
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að foreldrar skrá nú unglingana sína í Vinnuskóla Reykjavíkur. Það gera þeir með því að fara inn á heimasíðu Vinnuskóla Reykjavíkur.
Nánar má lesa um þetta hér í auglýsingu vinnuskólans sem er á pdf - formi. |
|
föstudagur, 26 mars 2010 15:52 |
 |
Hefð hefur skapast fyrir því að nemendur spili páskabingó í skólanum síðasta dag fyrir páskafrí. Unglingadeildin spilaði sitt bingó í skíðaferðinni sem farin var í byrjun vikunnar en aðrir nemendur föstudaginn 26. mars. Foreldrafélag skólans gaf vinningana í ár og þökkum við þeim kærlega fyrir.
|
|
Eftir páskaleyfi fjölgar þeim starfsmönnum skólans sem verða úti á skólalóð í frímínútum við gæslustörf.
Nú þegar sól hækkar á lofti bregður við að nemendur koma á hjólum í skólann. Við viljum ítreka að bannað er að vera á hjólum á skólalóð á skólatíma og að skólinn ber enga ábyrgð á hjólum nemenda.
Sjáumst heil þriðjudaginn 6. apríl.
Meðfylgjandi eru myndir frá páskabingóinu.
Gleðilega páska. Starfsfólk Hvassaleitisskóla.
|
|
|
Halla Hauksdóttir fékk 1. verðlaun |
|
|
|
|
miðvikudagur, 24 mars 2010 13:33 |
 |
Úrslit Stóru upplestrarkeppninnnar í hverfi Laugardalur/Háaleiti fóru fram þriðjudaginn 23. mars í Grensáskirkju. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og framburði. Keppendur voru 14 og komu úr eftirtöldum skólum: Álftamýrarskóla, Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla, Hvassaleitisskóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla og Vogaskóla.
Fyrir hönd Hvassaleitisskóla kepptu þær Inga Guðrún Eiríksdóttir og Halla Hauksdóttir sem jafnframt hlaut fyrstu verðlaun. Við óskum Höllu til hamingju með sigurinn og erum ákaflega stolt af stelpunum.
|
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 6 af 18 |