|
fimmtudagur, 18 mars 2010 11:33 |
|
Læsi á tölulegar upplýsingar og stærðfræði eru mikilvægir þættir í daglegu lífi fólks. Margar námsgreinar á síðari hluta skólagöngunnar byggja á einn eða annan hátt á stærðfræði og það er því mjög mikilvægt að nemendur nái strax tökum á grunnhugtökum stærðfræðinnar. Í Starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík fyrir árið 2004 var það markmið sett að staða nemenda í stærðfræði í 3.bekk yrði metin með skimun og hefur það verið gert árlega frá þeim tíma. Skimunarpróf eru notuð í því skyni að afmarka þann hóp nemenda sem þarfnast aðstoðar á tilteknu námssviði eða námsgrein. Skimunarprófið „Talnalykill“ er staðlað og töluverð reynsla komin á notkun þess og er það líklega eina tækið hérlendis þar sem skimunaraðferð hefur verið þróuð sérstaklega og eiginleikar hennar og árangur rannsakaðir. Skimunin var lögð fyrir í nóvember sl. Nemendur í Hvassaleitisskóla eru með marktækt betri árangur en nemendur í grunnskólum Reykjavíkurborgar í heild í þrepi 1 og með þriðja hæsta meðaltalið af skólunum 30 er þátt tóku.
Sjá nánar niðurstöður skimunarinnar hér fyrir Hvassaleitisskóla. Fyrir Reykjavík |
|
|
föstudagur, 12 mars 2010 14:48 |
 |
Nemendur í 7. bekk hafa verið að æfa upplestur og framsögn á undanförnum vikum, sem er m.a. liður í undirbúningi fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin er ár hvert. Nemendur heimsóttu m.a. eldri borgara í Hvassaleitinu og lásu fyrir þá sögur. Nemendur nutu mjög þessarar heimsóknar því viðtökur voru með eindæmum góðar.
|
|
Forkeppnin fór fram í safnaðarheimili Grensáskirkju 12. mars og þeir keppendur sem valdir voru fyrir hönd skólans í aðalkeppnina voru: Halla Hauksdóttir og Inga Guðrún Eiríksdóttir og til vara Eyþór Gunnlaugsson.
Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Aðalkeppnin fer fram í Grensáskirkju þriðjudaginn 23. mars kl 15:30. Þá mæta fulltrúar allra skóla úr hverfi 2 í Reykjavík.
|
|
|
föstudagur, 12 mars 2010 14:22 |
 |
Undanfarnar tvær vikur hafa þrír kennaranemar verið hjá 7. G Þeir heita Elínborg, Harpa og Þorleifur. Nemarnir kenndu krökkunum um Tyrkjaránið í fyrri vikunni en í þeirri síðari var unnið í hópum að veggspjöldum. Þetta var skemmtilegur tími og með því að smella á myndina hér til hliðar má sjá myndir frá starfinu.
|
|
|
Krummadagskrá í Gerðubergi |
|
|
|
|
miðvikudagur, 10 mars 2010 13:21 |
 |
Miðvikudaginn 10. mars fór 1. bekkur í heimsókn í Gerðuberg. Þar fengu þau að fylgjast með og taka þátt í dagskrá um krumma. Bekkurinn var búinn að undirbúa heimsóknina með því að búa til krummagrímur og æfa nokkur krummalög. Þau voru dugleg að taka undir í söngnum og stóðu sig vel í alla staði.
|
|
|
9. bekkur heimsækir Þjóðminjasafnið |
|
|
|
|
þriðjudagur, 09 mars 2010 14:50 |
 |
Þriðjudaginn 9.mars fór 9.bekkur í heimsókn á Þjóðminjasafn Íslands. Þar fengu þau fræðslu um tækninýjungar á 20.öldinni og fengu að skoða ýmsa muni sem tengjast þeirri öld. Ferðin var liður í sögukennslu í 9.bekk en þar eru nemendur einmitt að lesa um og kynna sér þær framfarir sem orðið hafa á Íslandi á 20.öldinni. Nemendur voru mjög áhugasamir og voru sjálfum sér og skólanum til sóma. Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir.
|
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 8 af 18 |