Innkaupalistar 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 16 júní 2010 11:45

Innkaupalistar fyrir haustið 2010 eru komnir á vefinn. Þeir eru undir valmyndinni Nemendur hér að ofan og undir valmynd hvers bekkjar.

 

 
6.G í skógarferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 04 júní 2010 11:22
myndir198

Miðvikudaginn 26. maí fór 6. G í ferð í Svartaskóg, grenndarskóg  Hvassaleitisskóla.  Nemendur tálguðu undir leiðsögn Ástu stærðfræðikennara og smíðuðu mannhelt skýli. 

 
Skólaslit 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 03 júní 2010 09:55
img_8553

Skólaslit Hvassaleitisskóla fóru fram mánudaginn 31. maí 2010.
Nemendur yngri bekkja hittu umsjónarkennara sína og tóku við umsögnum og kveðjum áður en þeir hlupu út í sumarfríið.
Nemendur í  7. - 10 bekk komu saman í Grensáskirkju. Þar fór Halla Hauksdóttir í 7. bekk með frumsamið ljóð sem heitir Vorið.

 

 

 

 

 

Útskriftarnemarnir Jóhanna Björk Viktorsdóttir og Helga Hannesdóttir léku á píanó sitthvort verkið. Skólastjóri hélt hátíðarræðu og Snorri Björnsson formaður nemendafélagsins flutti pistil útskriftarnema. Viðurkenningar voru veittar fyrir góðan námsárangur og bestu framfarir í námi.
Eftir afhendingu einkunna var útskriftarnemum, aðstandendum þeirra og starfsfólki skólans boðið upp á veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar.
Viljum við þakka nemendum og aðstandendum þeirra fyrir samstarfið í vetur og óskum þeim farsældar í sumarfríinu.

Skólasetning fer fram mánudaginn 23. ágúst.

Bestu kveðjur
Stjórnendur

 
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 02 júní 2010 11:45
img_5505

Foreldra-, hvatningar-  og dugnaðarforksverðlaun Heimilis og skóla 2010 voru veitt í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 1. júní .

Foreldrafélag Hvassaleitisskóla fékk þrjár tilnefningar fyrir vinnu sína að verkefninu Vinir í Hvassó. Verkefnið hlaut  Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla og óskum við þeim hjartanlega til hamingju með þá viðurkenningu.

Sjá meðfylgjandi myndir. Einnig eru fleiri upplýsingar og myndir þessu tengdar á heimasíðu Heimilis og skóla.

 

 
Vordagar 7. bekkjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 31 maí 2010 11:09
img_8533

Sólin skein á krakkana í 7. G þegar þeir fóru í Nauthólsvíkina í síðustu viku.
Daginn eftir  fóru þeir gangandi niður í bæ og fræddust um hús og götur. 
Komið var við á ýmsum stöðum frá Hallgrímskirkju að Aðalstræti.
Hjartagarðurinn við Laugaveg hafði mikið aðdráttarafl enda hægt að príla upp á  skrautlega veggi.
Á röltinu um bæinn hittu  krakkarnir Jón Gnarr  og fengu mynd af sér með honum.

Gleðilegt sumar.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 18

Viðburðadagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Á döfinni

fös 10.sep kl. 08:10 - 12:30
5. bekkur í gróðursetningu á Úlfljótsvatni
fim 16.sep kl. 15:00 - 17:00
Haustfundur og námskynningar í 1. -10. bekk
fim 23.sep kl. 14:00 - 16:00
7. bekkur heimsækir Læknadeild HÍ
þri 28.sep kl. 09:00 - 15:00
Haustferð 8.-10. bekkja
Clicky Web Analytics