Vordagar og skólaslit í Hvassaleitisskóla. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 25 maí 2010 16:11

Dagana 26.-28. maí eru vordagar í Hvassaleitisskóla.

Þá daga hefst kennsla kl 8:50 og lýkur kl. 12:00.

Aðstandendur nemenda hafa fengið senda heim dagskrá þessara daga og þeir nemendur sem skráðir eru í Krakkakot verða í umsjón skólans til kl. 12:30.

Skólaslit verða mánudaginn 31. maí.

Nemendur í 1.-6. bekk mæta kl. 10:00 í sína heimastofu.

Nemendur í 7.-10. bekk mæta kl.13:45 í Grensáskirkju. Athöfn hefst kl. 14:00. Foreldrar velkomnir.

Útskriftarnemum, aðstandendum þeirra og starfsfólki skólans er boðið að þiggja veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar að athöfn lokinni.

Þökkum samstarfið í vetur

Stjórnendur

 
Clicky Web Analytics